|
|
109.00 109 RUV Lau 04 FEB 2012 04.51:09
#### INNLENDAR FRÉTTIR 102
### ERLENDAR FRÉTTIR 103 3/2
Töpuðu 170 milljörðum á Existu
Lífeyrissjóðirnir töpuðu rúmum 170
milljörðum á viðskiptum við Existu og
tengda aðila. Tapið lífeysissjóðanna
vegna Existu er 44 prósent af öllu tapi
sjóðanna vegna hluta- og skuldabréfa.
Þetta kemur fram í skýrslu um starfsemi
lífeyrissjóðanna fyrir hrun sem kynnt
var í dag. Þar segir að
lífeyrissjóðirnir hafi fjárfest of
mikið í tengdum fyrirtækjum.
Lífeyrissjóðirnir falla ekki undir
ákvæði laga um fjármálafyrirtæki en það
er þó mat nefndarmanna að sem
fagfjárfestar hafi þeir mátt horfa til
varúðarsjónarmiða laganna við
fjárfestingar sínar. Lífeyrissjóðirnir
töpuðu rúmum 170 milljörðum vegna bréfa
í Existu og tengdum félögum. Þá nam tap
sjóðanna vegna Baugs og tengdra aðila
rúmum 77 milljörðum.
|
Forsíða, síða 100
Fréttir/News
Veður
Dagskrá
Íþróttir
Samgöngur
Efnisyfirlit
Síða
Undirsíða
|