|
|
141.00 141 RUV Tri 07 FEB 2012 08.56:28
##### NORÐURLAND ##############
#### SVÆÐIS- ############## 2/2
Hætt við lokanir á Króknum
Áform um að loka sundlaug og
endurhæfingarhúsi hjá
Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki
hafa verið dregin til baka.
Velferðarráðherra hefur tilkynnt
Skagfirðingum að fé til rekstursins
hafi verið tryggt.
Heilbrigðisstofnuninni var gert að
spara um 40 milljónir á árinu. Liður í
sparnaðinum var að loka
endurhæfingarhúsi og sundlaug.
Hafsteinn Sæmundsson forstjóri segir
þetta góð tíðindi, "því það hefði satt
að segja orðið okkur þungbært og í raun
og veru fullyrðum við að það hefði
enginn sparnaður orðið, hvorki fyrir
ríkið né aðra, segir hann.
Akureyrarflugvöllur > 425 RÚVAK 135
|
Forsíða, síða 100
Fréttir/News
Veður
Dagskrá
Íþróttir
Samgöngur
Efnisyfirlit
Síða
Undirsíða
|