147.00 147 RUV Lau 04 FEB 2012 05.17:33
   ##### AUSTURLAND ##############      
    ####    SVÆÐIS- ############## 1/2  
 Rúður í stýrishúsinu splundruðust      
 Flutningabílstjóri slapp með skrekkinn 
 þegar stór aurskriða lokaði veginum um 
 Þvottárskriður, milli Lónsfjarðar og   
 Álftafjarðar, í nótt. Grjót fór í      
 gegnum stýrishúsið og rúður brotnuðu.  
 Skriðan féll líklega um klukkan fjögur 
 í nótt en þá var afar slæmt veður, rok 
 og rigning. Flutningabílstjóri á leið  
 til Egilsstaða kom fyrstur að          
 skriðunni. Honum leist ekki á aðstæður 
 og hugðist snúa bíl sínum við en þurfti
 til þess að taka tengivagninn aftan úr.
 Meðan hann var að því splundruðust tvær
 rúður í bílnum. Svo virðist sem steinn 
 hafi farið inn um rúðuna bílstjóramegin
 og út farþegamegin. Bílstjórann sakaði 
 ekki. Myndir og viðtal á               
 ruv.is/austurland                      
                                        
                                        
                                        
Forsíða, síða 100
Fréttir/News
Veður
Dagskrá
Íþróttir
Samgöngur
Efnisyfirlit


Síða

Undirsíða

sér um rekstur
Textavarpsins á Netinu.