|
|
149.00 149 RUV Lau 04 FEB 2012 04.36:44
##### AUSTURLAND ##############
#### SVÆÐIS- ############## 3/2
Borgarstjórn líti á flugvöllinn sem
Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs hvetur
borgarstjórn Reykjavíkur til að líta á
Reykjavíkurflugvöll sem tækifæri til að
standa undir hlutverki höfuðborgar með
sóma. Þetta kemur fram í ályktun sem
samþykkt var á síðasta fundi
bæjarstjórnar. Bæjarstjórnin minnir
borgarstjórn Reykjavíkur á að sem
höfuðborg hafi hún ákveðnum skyldum að
gegna gagnvart þeim sem búa úti á
landi. Verði innanlandsflug flutt til
Keflavíkur myndi það valda
óásættanlegri þjónustuskerðingu fyrir
íbúa landsbyggðarinnar. Þá bendir
bæjarstjórnin á að flugvöllurinn feli
einnig í sér tækifæri fyrir borgina til
öflugrar uppbygginar á flugtengdri
starfsemi eins og þekkist í fjölmörgum
borgum í Evrópu og Ameríku.
|
Forsíða, síða 100
Fréttir/News
Veður
Dagskrá
Íþróttir
Samgöngur
Efnisyfirlit
Síða
Undirsíða
|