|
|
152.00 152 RUV Tri 07 FEB 2012 10.05:38
##### AUSTURLAND ##############
#### SVÆÐIS- ############## 2/2
Er þetta Lagarfljótsormurinn?
Myndir náðust í dag af torkennilegri
veru á sundi í Jökulsá í Fljótsdal. Af
myndunum að dæma er engu líkara en
Lagarfljótsormurinn sjálfur hafi verið
þarna á ferð en áin fellur í
Lagarfljót. Fyrirbærið hlykkjaðist um
ána fyrir neðan bæinn Hrafnkelsstaði og
virðist synda upp í strauminn.
Lagarfljótsormurinn er eitt kunnasta
skrýmsli Íslands. Hans er fyrst getið
árið 1345. Hvort myndirnar sem Hjörtur
Kjerúlf tók eru af þessu sögufræga
skrýmsli skal ósagt látið. Vantrúaðir
telja hins vegar að netadræsa hafi
fokið í ána og frosið föst. Svo þegar
áin fór að ryðja sig hlykkjaðist
,,ormurinn" um ána. Sjá myndir á
ruv.is/austurland
Egilsstaðaflugvöllur > 426 RAUST 136
|
Forsíða, síða 100
Fréttir/News
Veður
Dagskrá
Íþróttir
Samgöngur
Efnisyfirlit
Síða
Undirsíða
|