|
|
305.00 305 RUV Lau 04 FEB 2012 05.16:29
##### #######################
#### ##### ######### ####### 3/2
Guðjón Valur á leið til Kiel
Guðjón Valur Sigurðsson, fyrirliði
íslenska liðsins í handknattleik, hefur
gert tveggja ára samning við þýska
liðið Kiel. Guðjón Valur leikur nú með
danska úrvalsdeildarliðinu AG Köbenhavn
en samningur hans við liðið rennur út í
vor. Þetta kom fram í fréttum á
Bylgjunni í dag. Alfreð Gíslason er
þjálfari Kiel en liðið er nú í efsta
sæti þýsku úrvalsdeildarinnar með fullt
hús stiga. Landsliðsmaðurinn Aron
Pálmarsson leikur einnig með liðinu.
Kiel er fjórða liðið sem Guðjón Valur
leikur með í þýsku úrvalsdeildinni en
hann lék áður Essen og Rhein-Neckar
Löwen auk Gummersbach þar sem hann lék
einmitt undir stjórn Alfreðs.
Staðan- og úrslit dagsins ... 390
|
Forsíða, síða 100
Fréttir/News
Veður
Dagskrá
Íþróttir
Samgöngur
Efnisyfirlit
Síða
Undirsíða
|