|
|
307.00 307 RUV Lau 31 JUL 2010 10.23:49
##### #######################
#### ##### ######### ####### 30/7
Khedira til Real Madrid
Khedira sló í gegn með þýska
landsliðinu á heimsmeistarakeppninni í
sumar. Hann hefur leikið allan sinn
feril með Stuttgart og er talið að
spænska liðið hafi greitt um 12 milljón
evrur fyrir kappann, eða sem nemur 1,9
milljörðum króna. Khedira lék sinn
fyrsta landsleik í september á síðasta
ári og var ekki talið líklegt að hann
myndi taka mikinn þátt í
heimsmeistaramótinu. Meiðsli Michael
Ballack gerðu það hins vegar að verkum
að Khedira var hent út í djúpu laugina
og stóð hann sig með slíkri prýði að
Jose Mourinho fékk hann til liðs við
Real Madrid.
Staðan- og úrslit dagsins ... 390
|
Forsíða, síða 100
Fréttir/News
Veður
Dagskrá
Íþróttir
Samgöngur
Efnisyfirlit
Síða
Undirsíða
|